Kaupréttur okkar!

Nú er búið að bakka með að 10 útvaldir fái kauprétt í Orkuveitunni hinni nýju. Menn telja að bolurinn muni sætta sig betur við að starfsfólk OR fái allt að kaupa bréf á góðu gengi. Ég telst víst vera hluti af bolnum þ.e. almenningi í þessu máli. Þar að auki er ég Reykvíkingur og hef greitt útsvar hér í bæ árum saman. Mér finnst því yfir höfuð bara ekkert eðlilegt að starfsmenn opinberra stofnana eða fyrirtækja fái einhvern rétt umfram eigendur (þ.e. almenning) og gildir þá einu hvort þessir starfsmenn séu 10 útvaldir eða 200 útvaldir. Starfsmenn opinberra fyrirtækja "eiga" ekkert fyrirtækin! Það er nefnilega málið! Og þessvegna er það í hæsta máta dómgreindarbrestur að láta sér detta það í hug að starfsmenn eigi einhvern rétt á að græða á fyrirtækjum í obinberri eign umfram sauðsvartan almúgan sem hefur byggt fyrirtækið upp með skattfé sínu. Í mínum huga sýnir þetta bara að við stjórn OR eru menn sem halda að þeir stýri einkafyrirtæki - lifa í draumi eins og í laginu forðum. Hvernig var það annars, fengu starfsmenn Vélamistöðvar borgarinnar forkaupsrétt á sérlega lágu gengi þegar því borgarfyrirtæki var breytt í hlutafélag og selt? Já pælum nú aðeins í því!


mbl.is Átti að vaða yfir okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem koma til með að hagnast mest á þessu fjármálasukki eru feitu aurapúkarnir Bjarni Ármannson, Jón Ásgeir og Hannes Smárason, enda er þetta allt spunnið í kring um þá og auðvitað hannað af þeim sjálfum til að græða sem mest á sauðsvörtum almúganum.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband